Gólfslípivél Husqvarna PG690

Frábærar og öflugar gólfslípivélar frá Husqvarna.

Husqvarna PG 690 er fjölhæf og öflug gólfslípivél en samt nógu nett til að komast í gegnum venjulegar hurðir (heildarbreidd: 67 cm).

Þessar slípivélar eru tilvaldar fyrir flest gólfslípi verkefni í iðnaðar- og atvinnuhúsnæði.

Plánetu gír og endurbætt, Husqvarna-Dual Drive Technology ™ skila framúrskarandi afköstum.

PG 690 gólfslípivélar henta vel til undirvinnu fyrir önnur gólfefni, almenna gólfslípun og til póleringar á steinsteypu (Terrazzo).

Gólfslípivél þessi er að fullu rykþétt. Hún veitir því óviðjafnanlega vörn gegn ryki og raka sem eykur endingartímann verulega.

Eins og aðrar slípivélar frá Husqvarna er einfalt að fella vélina saman til að auðvelda flutning.

Hægt er að fá Þyngingar og LED ljós sem aukabúnað.

Einnig er hægt að fá gólfslípivél PG690 með fjarstýringu, vél PG690RC

Hægt er að tengja iðnaðarryksugur frá Husqvarna og HTC við þessar gólfslípivélar.

 

Tæknilegar upplýsingar
Gólfslípivél PG690RC PG690
Fjarastýring Nei
Þyngd 598 kg 502 Kg
Mótorstærð 12,5 kW 12,5 kW
Þvermál slípidisks 270 mm 270 mm
Volt 380 – 415 V 380 – 415 V
Fasar 3 3
Fjöldi slípidiska 3 3
Snúningur Sjálfstæð stýring áfram og afturábak fyrir slípidiska og plánetu haus Sjálfstæð stýring áfram og afturábak fyrir slípidiska og plánetu haus
Ráðlagðar ryksugur HTC D60 HTC D60

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um gólfslípivélar.

 

Gólfslípivél Husqvarna PG690

HUSQVARNA

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur