Lofthreinsir Husqvarna A2000

Lofthreinsir A 2000 er frábær lofthreinsibúnaður frá Husqvarna.

Lofthreinsir A 2000 frá Husqvarna er einn fullkomnasti færanlegi lofthreinsibúnaður sem til er á markaðnum.

A2000 lofthreinsir er vottaður lofthreinsibúnaður sem ætlaður er til að taka fíngert ryk í loftinu sem ryksugur ná ekki við t.d. gólfslípun eða steypusögun.

Síukerfi og hönnun A2000 lofthreinsibúnaðarins ásamt vottaðri HEPA H13 síu með 99,99% skilvirkni við 0,3 míkron gerir það að verkum að lofthreinsirinn setur frá sér einstaklega góð loftgæði hvort heldur sem er í vinnu við steypuryk, fíngert steinryk eða gifsryk.

Lofthreinsir A2000 er með tvö viðvörunarljós sem gefa til kynna þegar síurnar eru stíflaðar eða leka.

A2000 lofthreinsirinn er hljóðlítil lofthreinsivél með tvær mismunandi hraðastillingar á loftflæðinu.

Þessi lofthreinsibúnaður er mjög auðveldur í flutningi, þökk sé þéttum kassanum.

Hægt er að fá læsanleg hjól til að auðvelda flutning enn frekar.

Hreinsun lofts og ryksugun eru mikilvægir þættir við slípun gólfa og steypusögun, bæði frá heilsufars sjónarmiðum og einnig til að fyrirbyggja að umhverfið verði allt undirlagt í ryki.

Hér má finna fræðsluefni er varðar viðhald á ryksugum og lofthreinsibúnaði frá Husqvarna svo sem skiptingu á forsíu og hreinsun á hepa síu.

 

Tæknilegar upplýsingar
Lofthreinsir A2000
Þyngd 38 kg
Fasar 1
Mótor 0,75 kW
Loftflæði 2.000 m³/h
Hæð 820 mm
Lengd 460 mm
Breidd 700 mm

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um lofthreinsa eða annan lofthreinsibúnað frá Husqvarna.

 

Lofthreinsir Husqvarna A2000

HUSQVARNA

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur