Forsuga Husqvarna C5500

Forsuga C5500 frá Husqvarna er mjög afkastamikil iðnaðar-forsuga fyrir mjög stór slípiverkefni þar sem mikið er af ryki.

Mælt er með að tengja þessa forsugu við iðnaðarryksugur T7500 og T10000.

Þessi ryksuga C5500 er forsuga sem aðskilur 90% af ryki og öðru efni áður en það fer yfir í aðal ryksuguna sem eykur soggetuna til muna, lengir endingu mótorsins og dregur verulega úr tíðni viðhalds síunnar í ryksugunni.

Með því að nota forsugu með iðnaðarryksugu fæst lengri verktími án truflana.

Forsuga eykur getu aðal ryksugunnar til að höndla efni sem venjulega eru talin erfið meðhöndlunar eins og sót, brennandi agnir, vökvi og létt efni í miklu magni.

Longopac® pokakerfið tryggir einföld og ryklaus pokaskipti.

Þessa forsugu er hægt að nota bæði við blaut- og þurrslípun.

 

Tæknilegar upplýsingar
Forsuga C5500
Rúmmál tanks 100 l
Hæð 1.640 mm
Lengd 600 mm
Breidd 720 mm
Þyngd  46 kg
Ryksugur sem mælt er að tengja við T7500
T10000
Pokar Longopac slöngupokar

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um forsugur og aðrar ryksugur frá Husqvarna.

 

Forsuga Husqvarna C5500

HUSQVARNA

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur