- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Gólfslípun
- Umferðaröryggi
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
- Mælitæki
- Fyrir húsfélög
- Rannsóknartæki
- Efnavörur
- Fræðsluhornið
- Flugvallarbúnaður
- Notuð tæki
Snjóblásari Westa 1050FA
Snjóblásari frá Westa tegund 1050 FA er stór og afkastamikill snjóblásari fyrir dráttarvélar með vélarafl frá 150 - 380 hestöfl. Hægt er að festa þennan snjóblásara hvort heldur sem er framan eða aftan á dráttarvél.
Snjóblásari 1050 FA er hannaður til að hreinsa mikið magn af snjó.
Við notkun snjóblásara 1050 FA er hægt að velja á milli þess að beina snjóblæstrinum í gegnum túðu eða beina snjóblæstrinum beint úr kasthjólshúsinu til hægri eða vinstri. Með því að beina snjóblæstrinum beint út má ná meiri afköstum og lengri kastvegalengdum.
Þessi snjóblásari er með vökvastýrðan snúning á túðu. Vökvastýrt spjald á túðu er valmöguleiki.
Snjóblásari 1050 FA er með vinnslubreidd 2.700 til 3.200 mm og með þvermál snigils 1050 mm.
Snjóblásari 1050 FA er öflugur snjóblásari sem tilvalinn er fyrir snjómokstur á Íslandi þar sem kröfur eru um mikil afköst í miklum snjó.
Þessi snjóblásari frá Westa er frábær snjóblásari fyrir íslenskar aðstæður.
Westa snjóblásarar – Þýsk gæði.
Tæknilegar upplýsingar
Snjóblásari | Westa 1050FA |
---|---|
Aflþörf | 150 - 380 hö |
Vinnslubreidd | 2.700 til 3.200 mm |
Þvermál snigils | 1050 mm |
Þyngd | 2400-2850 kg |
Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um Westa snjóblásara.
Fleiri myndir