Fylliefni fyrir litlar glufur á steingólfum

Fylliefni GM3000 frá Husqvarna er einstaklega gott múrefni til að fylla upp í smáar glufur og örlitlar sprungur í steyptu yfirborði.

Fylliefni fyrir steypt yfirborð, steingólf og Terrazzo

Fylliefni GM3000 hentar vel á steypt yfirborð, steingólf og Terrazzo. Það hentar einnig á háglans slípuð gólf þar sem æskilegt er að fylla upp í mjög litlar glufur í gólfinu.

Fylliefni í vökvaformi tilbúið til notkunar á steingólf

Fylliefni Husqvarna GM3000 er múrefni í vökvaformi sem er tilbúið til notkunar. Mjög auðvelt er að dreifa fylliefni GM3000 yfir gólfið og slípa niður í yfirborð á steinsteyptu gólfi.  

Fylliefni blandast slípiryki og fer í sprungur á steingólfum

Þegar búið er að dreifa fylliefni GM3000 á viðkomandi yfirborð og slípun hefst, blandast fylliefnið við slípirykið sem þrýst er í þær holur og sprungur sem fylla þarf uppí og herðist þar.

Fylliefni GM3000 fyrir meðalstór og stór gólf

Fylliefni GM 3000 frá Husqvarna hentar vel fyrir meðalstóra og stóra gólffleti. Þetta fylliefni hentar vel til notkunar innanhúss.

Kostir fylliefnis GM3000 m.a. að það gulnar ekki

  • Fylliefni sem er auðvelt í notkun og því ákjósanlegt fyrir stóra fleti.
  • Andar, stöðvar UV geisla og mun ekki gulna.
  • Ekki eldfimt né eitrað og lítil lykt.

 

Tæknilegar upplýsingar
Husqvarna fylliefni  GM 3000
Magn 20 lítrar
Öryggisblað Sjá hér
Tæknilegar upplýsingar Sjá hér
Vörunúmer 96581921806

 

Fylliefni fyrir litlar glufur á steingólfum

HUSQVARNA

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur