Gátskildir WeBaNi60 frá Nissen K30.22 og K30.21

Gátskildir WeBaNi60 frá Nissen eru hágæða gátskildir sem framleiddir eru í Þýskalandi.

Gátskildir WeBaNi60 eru viðsnúanlegir 180° (reversible) með örvar í tvær áttir.

Á þessum gátskjöldum er ekkert innra stálrör og er því hægt að endurvinna án aðskilnaðar efnis.

Á hverjum gátskildi eru 2 plast tengistykki, 60 x 60 mm

Mikilvægt er að nota öryggismerkingar svo sem gátskildi, umferðarkeiluröryggisljós og öryggisgirðingar við framkvæmdir til að tryggja öryggi vegfaranda og framkvæmdaaðila.

Hér er hægt að skoða fótstykki fyrir þessa gátskildi.

Samkvæmt reglum um vinnusvæðamerkingar - 17. útg. mars 2021 á vef Vegagerðarinnar má sjá reglur um gátskildi og númer þeirra í kafla 4.3.4.


Skv. þessum reglum eru WeBaNi60 gátskildirnir númer K30.22 með vísun til hægri  og K30.21 með vísun til vinstri.

 

Tæknilegar upplýsingar
Gátskildir WeBaNi60
Þyngd 2,6 kg
Stærð 1415 x 287 x 60 mm
Efni tengistykkis Plast
Stærð tengist. 60mm x 60mm
Vísun til hægri K30.22
Vísun til vinstri K30.21
Vörunúmer 41 070331-2

 

Gátskildir WeBaNi60 frá Nissen K30.22 og K30.21

NISSEN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur