Ljósaör LP13 viðvörunarljós L8H

Ljósaör LP13 frá Nissen, þýsk viðvörunarljós L8H í hæsta gæðaflokki.

Ljósaör LP13 er ætluð til að nota á vinnusvæðum þar sem beina þarf umferð til hliðar.

Þetta er ljósaör með 13 L8H LED viðvörunarljósum sem eru 200 mm díóðu blikkljós. Viðvörunarljósin eru í veðurþolnum plastramma. Á bakhlið er sterk festing fyrir rör eða prófíl.

Þessi ljósaör kemur með fjarstýringu Eco-Remote II  sem er með 14 metra snúru.  Einnig fylgir þessari ljósaör 5 metra rafmagnskapall með rafgeymaklemmum.

Þessi Nissen LP13 ljósaör sést einstaklega vel í mikilli fjarlægð en blindar ekki aðkomandi vegfarendur þegar þeir nálgast viðvörunarljósin.

Ljósaörin er hágæða viðvörunarljós, framleidd samkvæmt Evrópu reglugerð EN 12352.

Ljósaör í flokki L8H fyrir vinnusvæðamerkingar.

 

Tæknilegar upplýsingar
Viðvörunarljós Ljósaör LP13
Flokkkur L8H
Tegund ljósa Díóðu blikkljós, 13 stk
Grind Veðurþolinn plastrammi
Festingar Festing fyrir rör eða prófíl
Styrkleiki ljósa Sjálfvirk styrkleika stilling
Volt 12 eða 24 volt.
Vörunúmer 41 129355-1

 

Ljósaör LP13 viðvörunarljós L8H

NISSEN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur