Sealer og þéttiefni TOPICAL GUARD COLOR

TOPICAL GUARD COLOR  sealer eða sérstakt þéttiefni sem hannað er til að vernda yfirborð steinsteyptra gólfa sem þarfnast verndar gegn vökva eða öðrum efnum.

Husqvarna TOPICAL GUARD COLOR er þéttiefni sem sérstaklega er þróað til að nota

á nýjum, ójöfnum eða skemmdum steyptum flötum eða gömlu steinsteyptu gólfi þar sem vilji er til að hylja gólfið með einsleitri þunnri, litaðri filmu.  

Sealer þessi hvarfast við steypuna til að gera hana þéttari og gólfið endingarbetra.

Um leið og þessi sealer virkar sem þéttiefni myndast einnig þunn filma sem skapar vörn gegn skaða af ýmsum vökvum, olíu, fitu og almennum óhreinindum.

ATHUGA þarf að þar sem varan myndar þunnt litað lag ofan á yfirborðið er það næmt fyrir rispum.  Þar af leiðandi mun mikill ágangur skilja eftir sig rispur með tímanum og því getur verið nauðsynlegt að hressa yfirborðið af og til.

 Kostir TOPICAL GUARD COLOR sealer eru meðal annars:

  • Góð vörn gegn vökva og olíu sem hellist niður
  • Þétting sem skapar rykþétt og slitþolið yfirborð
  • Engar loftbólur eða blöðrur af völdum raka sem kemur úr jarðvegi

TOPICAL GUARD COLOR fæst í tveimur litum, ljósgráum og dökkgráum lit.

 

Tæknilegar upplýsingar
Husqvarna
Sealer og þéttiefni  
TOPICAL GUARD COLOR Ljósgrátt TOPICAL GUARD COLOR Dökkgrátt
Magn 20 lítrar 20 lítrar
Vörunúmer 531222201 531222301
Öryggisblað Blað A og Blað B Blað A og Blað B
Tæknilegar upplýsingar Sjá hér Sjá hér

 

Sealer og þéttiefni TOPICAL GUARD COLOR

HUSQVARNA

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur