Sandari fyrir vegaxlir og skurði

Sandari fyrir vegaxlir og skurði eða Side-Shoot bucket "Finliner" frá Optimas.

Sandari fyrir vegaxlir og skurði  er frábær dreifari fyrir margskonar verkefni svo sem:

  • Fylla á saltkistur
  • Sanda ofan í skurði
  • Dreifa og jafna viðarkurli í beð
  • Dreifa efni, möl, sandi og jafnvel malbiki í vegaxlir

Með "Finliner" sandara er mjög auðvelt að dreifa ýmsu efni. Sandarinn sem er eins konar skúffa er tæmd til hliðar um færiband með fullkomnum skammtara þar sem  magn efnisins er nákvæmlega mælt. Efnið fellur fyrir framan skriðblað sem er stillanlegt fyrir hæð og halla.

Hægt er að fylla á sandarann (skúffuna) á hefðbundinn hátt eða með annarri hjólaskóflu.

Finliner Sandari fyrir vegaxlir og skurði hentar vel fyrir margskonar framkvæmdir og hefur komið sér vel t.d. fyrir vegagerð og við línulagninu.

Kostir þessara dreifara eru margir en nefna má m.a. tímasparnað, efnissparnað, auðveldur í notkun, nákvæmur skammtari,  fljót og auðveld uppsetning auk þess sem hann hentar fyrir dreifingu á margskonar efni.

Hægt er að fá þessa sandara fyrir vegaxlir og skurði í þrem mismunandi stærðum þ.e.  0,5 m³, 1,0 m³ og 1,4 m³.

Við mælum með fyrir áhugasama að horfa á eftirfarandi myndbönd sem sýna notkun á þessum sandara fyrir vegaxlir og skurði við mismunandi aðstæður með mismunandi efni: 

 Sandari fyrir vegaxlir og skurði getur einnig verið kallaður efnisdreifingarskófla.

 

Tæknilegar upplýsingar
Sandari fyrir vegaxlir og skurði 0.5 m³ 1.0 m³ 1.4 m³
Rúmtak upp að kanti 0,5 m³ 0,8 m³ 1, 1 m³
Rúmtak - hrúgað upp 0,6 m³ 1,0 m³ 1,4 m³
Fyllingar-breidd 1,83 m 2,6 m 2,6 m
Lengd 1830 mm 2599 mm 2599 mm
Breidd 1080 mm 900 mm 1190 mm
Hæð 1125 mm 1125 mm 1197 mm
Lengd færibands 1,70 m 2,50 m 2,50 m
Þyngd 640 kg 820 kg 1.120 kg
Mynd með málum 0,5 m³ 1,0 m³ 1, 4 m³

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um sandara fyrir vegaxlir og skurði.

 

Sandari fyrir vegaxlir og skurði

OPTIMAS

Upplýsingar framleiðanda

Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur