Ryksuga Husqvarna HTC D80

Ryksuga HTC D80 er öflug og stór iðnaðarryksuga frá Husqvarna, áður HTC

Ryksuga HTC D80 er mjög stór iðnaðarryksuga sem hentar sérstaklega vel með stórum gólfslípivélum, til að fjarlægja þungt og gróft ryk sem kemur við gólfslípun þegar verið er að undirbúa gólf fyrir önnur gólfefni en einnig fyrir önnur stór gólfslípunarverkefni.

Að ryksuga er mikilvægur þáttur við slípun gólfa, bæði frá heilsufars sjónarmiðum og einnig til að fyrirbyggja að umhverfið verði allt undirlagt í ryki.

Ryksuga HTC D80 er útbúin með afkastamikilli forsugu (Pre-Separator) sem fjarlægir allt að 95% af rykinu og eykur líftíma síunnar í ryksugunni.

Þessa HTC D80 ryksugu er hægt að nota á ýmsa vegu, allt eftir því hvað hentar hverju verkefni.

Þessar ryksugur eru mjög öflugar iðnaðarryksugur og mælt er með tengingu við fjarstýrðar stórar gólfslípivélar fyrir hámarks skilvirkni og afköst. Hægt er að njóta góðs af þessum ryksugum þó notaðar séu hefðbundnar gólfslípivélar án fjarstýringar.

Longopac® pokakerfið tryggir einföld og ryklaus pokaskipti. 

Hægt er að tengja iðnaðarryksugur Husqvarna við gólfslípivélar frá HTC og Husqvarna.

 

Tæknilegar upplýsingar
Ryksuga HTC D80
Þyngd 272 kg
Mótor 7,5 kW
Afl 3 × 230 V
3 × 400 V
3 × 480 V
Hámarks loftflæði 700 m³/h
Síuflötur - forsía 3,5 m²
Síuflötur - HEPA sía 20,8 m²
Hentar fyrir gólfslípivélar PG820RC
PG830
HTC 8
HTC 950 RX
Pokar Longopac slöngupokar

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um ryksugur og iðnaðarryksugur frá Husqvarna.

 

Ryksuga Husqvarna HTC D80

HUSQVARNA

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur