Jarðvegsvaltari ARS30 frá Ammann

Jarðvegsvaltari ARS30 frá Ammann

Ammann ARS 30 jarðvegsvaltarar eru háþróaðir og nýstárlegir litlir valtarar með öflugar vélar með nýjustu útblástursstöðlum.

Ammann ARS 30 jarðvegsvaltari er með góða vél og fullkomið kælikerfi sem skilar framúrskarandi eldsneytiseyðslu en þessi skilvirkni og stór eldsneytistankur þýðir að það þarf aðeins að fylla á tankinn á ca. þriggja vakta fresti.

Ammann ARS 30 jarðvegsvaltari er með hraða og nákvæma þjöppunareiginleika.

Þessi jarðvegsvaltari er með einstaka hönnun með lágum þyngdarpunkti sem eykur stöðugleika og öryggi á vinnustaðnum auk þess sem hann er með tvílæst drif sem bætir grip.

Ammann ARS 30 jarðvegsvaltari er með einfalt og áreiðanlegt mælaborð. Valtarinn er með óhindrað útsýni frá stjórnklefa sem veitir aukið öryggi á vinnusvæðinu auk þess sem stjórnklefinn er hannaður fyrir aukin þægindi fyrir stjórnanda vélarinnar.

Hér má sjá fréttatilkynningu Ammann frá júní 2022 um jarðvegsvaltara ARS30 og ARS50.

 

Tæknilegar upplýsingar
Jarðvegsvaltari ARS30 Upplýsingar
Lengd valtara 3529 mm
Hæð valtara 2556 mm
Breidd valtara 1338 mm
Breidd tromlu 1200 mm
Þvermál tromlu 930 mm
Þvermál tromlu - slétt 960 mm
Vél Kubota V2403-CR-T
Mengunarstaðlar ESB stig V /U.S. EPA Tier 4
Vinnu þyngd 3480 kg
Max ferðahraði 12 km/klst
Max vinnuhraði 9,5 km/klst.
Eldsneytistankur 98 l

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um jarðvegsvaltara.

 

Jarðvegsvaltari ARS30 frá Ammann

AMMANN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur