Jarðvegsvaltari ARS110 frá Ammann

Jarðvegsvaltari ARS110 frá Ammann

Ammann ARS 110 jarðvegsvaltarar eru fyrirferðarlitlir valtarar sem gott er að stýra og með mikinn sveigjanleika sem gerir þá einstaklega afkastamikla.

Jarðvegsvaltari ARS 110 er með virkilega gott útsýni úr stjórnklefa, góða eldsneytisnýtingu og góða klifurgetu.

Jarðvegsvaltari ARS 110 er með ACEforce  Intelligent Compaction kerfið sem bætir skilvirkni og gæði. Það býður upp á breytilega tíðni og mismunandi þjöppunargetu fyrir fjölbreyttar aðstæður.  Þessi valtari er með mikil þjöppunarafköst og býður uppá meiri þjöppun á þykkt undirlag sem þýðir færri umferðir.

Þessi jarðvegsvaltari er með rúmgott stýrishús með ROPS uppbyggingu (innbryggðir veltigrind) auk þess sem dregið er úr hávaða frá vélinni. , gott stjórnborð og 360° útsýni sem veitir aukið öryggi á vinnusvæðinu.

Ammann ARS 110 jarðvegsvaltari er með eiginleika ECOdrop en Ammann leggur þá áherslu á umhverfisvænni valtara þar sem þeir leggja m.a. áherslu á að takmarka þörfina fyrir þjónustu sem og minni eldsneytisnotkun.

Ammann jarðvegsvaltarar eru frábærir valtara sem henta vel til vinnu á Íslandi.

 

Tæknilegar upplýsingar
Jarðvegsvaltari ARS110 EU Stage V /U.S. EPA Tier 4 
Lengd valtara 5900 mm
Hæð valtara 2970 mm
Breidd valtara 2260 mm
Breidd tromlu 2130 mm
Þvermál tromlu 1500 mm
Þvermál tromlu - slétt 1694 mm
Vél Deutz TCD 3.6L4
Mengunarstaðlar EU Stage V / U.S. EPA Tier 4 
Vinnu þyngd 10 860 kg
Max ferðahraði 12 km/klst
Max vinnuhraði 7,6 km/klst.
Eldsneytistankur 345 l

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um jarðvegsvaltara.

 

Jarðvegsvaltari ARS110 frá Ammann

AMMANN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur