Jarðvegsvaltari ARS150 frá Ammann

Jarðvegsvaltari ARS150 frá Ammann

Ammann ARS 150 jarðvegsvaltarar eru 14.840 kg valtarar.  

ARS150 jarðvegsvaltarinn er með fjölbreytta tíðni og margskonar þjöppunargetu sem gerir hann að hinum fullkomna valtara fyrir hinar ýmsu aðstæður.

ARS150 eru mjög meðfærilegir jarðvegsvaltarar með góðan sveigjanleika og einstaklega afkastamiklir.

Jarðvegsvaltari ARS 150 er með öruggan og rúmgóðan stjórnklefa með 360° útsýni, góða eldsneytisnýtingu og góða klifurgetu.

Jarðvegsvaltari ARS 150 er með ACEforce  Intelligent Compaction kerfið sem bætir skilvirkni og gæði. Það býður upp á breytilega tíðni og mismunandi þjöppunargetu fyrir fjölbreyttar aðstæður.  Þessi valtari er með mikil þjöppunarafköst og býður uppá meiri þjöppun á þykkt undirlag sem þýðir færri umferðir.

Þessi jarðvegsvaltari er með rúmgott stýrishús með ROPS uppbyggingu (innbyggðri veltigrind) auk þess sem dregið er úr hávaða frá vélinni. , gott stjórnborð og 360° útsýni sem veitir aukið öryggi á vinnusvæðinu.

Ammann ARS 150 jarðvegsvaltari er með eiginleika ECOdrop en Ammann leggur þá áherslu á umhverfisvænni valtara þar sem þeir leggja m.a. áherslu á að takmarka þörfina fyrir þjónustu sem og minni eldsneytisnotkun.

Jarðvegsvaltari ARS 150 er með lágan þyngdarpunkt og góðan stöðugleika sem eykur verulega öryggi á vinnusvæðum.

Afturhlífin á þessum valtara opnast vel sem auðveldar og hraðar daglegu viðhaldi.

Ammann jarðvegsvaltarar eru frábærir valtara sem henta vel til vinnu á Íslandi.

 

Tæknilegar upplýsingar
Jarðvegsvaltari ARS150 EU Stage V /U.S. EPA Tier 4 
Lengd valtara 5950 mm
Hæð valtara 2970 mm
Breidd valtara 2260 mm
Breidd tromlu 2130 mm
Þvermál tromlu 1500 mm
Þvermál tromlu - slétt 1685 mm
Vél Deutz TCD4.1 L4
Mengunarstaðlar EESB stig V / U.S. EPA Tier 4
Vinnu þyngd 14.840 kg
Max ferðahraði 12,7 km/klst
Max vinnuhraði 6.5 km/klst.
Eldsneytistankur 345 l

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um jarðvegsvaltara.

 

Jarðvegsvaltari ARS150 frá Ammann

AMMANN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur