Jarðvegsvaltari ARS130 frá Ammann

Jarðvegsvaltari ARS130 frá Ammann

Ammann ARS 130 jarðvegsvaltarar eru 12.580 kg valtarar.  ARS130 eru mjög meðfærilegir jarðvegsvaltarar með góðan sveigjanleika og einstaklega afkastamiklir.

Jarðvegsvaltari ARS 130 er með rúmgóðan stjórnklefa með virkilega góðu útsýni, góða eldsneytisnýtingu og góða klifurgetu.

Jarðvegsvaltari ARS 130 er með ACEforce  Intelligent Compaction kerfið sem bætir skilvirkni og gæði. Það býður upp á breytilega tíðni og mismunandi þjöppunargetu fyrir fjölbreyttar aðstæður.  Þessi valtari er með mikil þjöppunarafköst og býður uppá meiri þjöppun á þykkt undirlag sem þýðir færri umferðir.

Þessi jarðvegsvaltari er með rúmgott stýrishús með ROPS uppbyggingu (innbyggðri veltigrind) auk þess sem dregið er úr hávaða frá vélinni. , gott stjórnborð og 360° útsýni sem veitir aukið öryggi á vinnusvæðinu.

Ammann ARS 130 jarðvegsvaltari er með eiginleika ECOdrop en Ammann leggur þá áherslu á umhverfisvænni valtara þar sem þeir leggja m.a. áherslu á að takmarka þörfina fyrir þjónustu sem og minni eldsneytisnotkun.

Jarðvegsvaltari ARS 130 er með lágan þyngdarpunkt og góðan stöðugleika sem eykur verulega öryggi á vinnusvæðum.

Ammann jarðvegsvaltarar eru frábærir valtara sem henta vel til vinnu á Íslandi.

 

Tæknilegar upplýsingar
Jarðvegsvaltari ARS130 EU Stage V /U.S. EPA Tier 4 
Lengd valtara 5900 mm
Hæð valtara 2970 mm
Breidd valtara 2260 mm
Breidd tromlu 2130 mm
Þvermál tromlu 1500 mm
Þvermál tromlu - slétt 1694 mm
Vél Deutz TCD 3.6L4
Mengunarstaðlar EU Stage V / U.S. EPA Tier 4 
Vinnu þyngd 12.580 kg
Max ferðahraði 12 km/klst
Max vinnuhraði 7,6 km/klst.
Eldsneytistankur 345 l

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um jarðvegsvaltara.

 

Jarðvegsvaltari ARS130 frá Ammann

AMMANN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur