Umferðarspegill Basic Stainless Steel 600x800mm

Umferðarspegill Basic Stainless Steel Standard VEB600 er vandaður hágæða umferðarspegill með ryðfríum stál spegli og UV vörðu og höggþolnu plasti. Stærð þessa umferðarspegils er 600 mm x 800 mm.

Basic Stainless Steel umferðarspegillinn sameinar kosti umferðarspeglanna Deluxe Stainless Steel og Acrylic Glass þ.e. spegilmyndar úr ryðfríu stáli með höggþolinni og léttri UV-þolinnar grindar úr plasti.

Basic Stainless Steel umferðarspegillinn er með festingum fyrir 60 til 90 mm rör.

Þessir umferðarspeglar eru vel sýnilegir og koma allir með rauðum og hvítum ramma.

Hægt er að fá þessa umferðarspegla með móðu- og frostvörn sem tryggir að hægt sé að nota þá allt árið um kring. Ekki þarf að tengja þessa umferðarspegla við rafmagn til að fá frost-og móðuvörn þar sem er hitastigi hlífarinnar er stjórnað með því að nota innfellt holrúm, froðu og gelpúða á milli speglayfirborðsins og bakveggsins sem kemur í veg fyrir að þoka eða ís myndist á linsunni við allt að -20°C.

Umferðarspeglar gegna mikilvægu hlutverki með því að veita meiri sýnileika og umferðaröryggi á gatnamótum og við inn og/eða útkeyrslur við bílastæði fjölbýlishúsa. Umferðarspeglar hafa í gegnum tíðina hjálpað ökumönnum að forðast slys á varhugaverðum gatnamótum.

Aðstæður eru mismunandi og mjög mikilvægt er að velja réttan umferðarspegil sem hentar best viðkomandi aðstæðum. Því getur verið gott að skoða einnig umferðarspegil VED600 Deluxe Stainless Steel, VA600 Acrylic Glass  og VAR60 Acrylic Glass kringlóttur og velja svo þann spegil sem hentar best.

Þessir umferðarspeglar henta mjög vel fyrir sveitarfélög og húsfélög sem vilja að auka öryggi og sýnileika við varhugaverð gatnamót og inn og/eða útkeyrslur við bílastæði.

 

Tæknilegar upplýsingar
Umferðarspegill  Basic Stainless Steel Standard VEB600
Stærð 600 mm x 800 mm
Fjarlægðarsvið 0-15 m
Þyngd 9 kg
Vörunúmer 44spi VEB600

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um umferðarspegla.

 

Umferðarspegill Basic Stainless Steel 600x800mm

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur