Umferðarspegill Deluxe Stainless Steel 600x800mm

Umferðarspegill Delux Stainless Steel Standard VED600 er vandaður hágæða umferðarspegill úr riðfríu stáli í stærðinni 600 mm x 800 mm.

Umferðarspeglar gegna mikilvægu hlutverki með því að veita meiri sýnileika og umferðaröryggi á gatnamótum og við inn og/eða útkeyrslur við bílastæði fjölbýlishúsa. Umferðarspeglar hafa í gegnum tíðina hjálpað ökumönnum að forðast slys á varhugaverðum gatnamótum.

Umferðarspegill Delux Stainless Steel er að öllu leiti framleiddur úr ryðfríu stáli. Speglarnir eru vel sýnilegir og koma allir með rauðum og hvítum ramma auk þess sem þeir eru höggþolnir.

Þessir umferðarspeglar eru fáanlegir með móðu- og frostvörn sem tryggir að hægt sé að nota þá allt árið um kring. Ekki þarf að tengja þessa umferðarspegla við rafmagn til að fá frost-og móðuvörn þar sem er hitastigi hlífarinnar er stjórnað með því að nota innfellt holrúm, froðu og gelpúða á milli speglayfirborðsins og bakveggsins sem kemur í veg fyrir að þoka eða ís myndist á linsunni við allt að -20°C.

Delux umferðarspegillinn er með festingum fyrir 60 til 90 mm rör.

Delux umferðarspeglarnir eru úr ryðfríu stáli sem þolir jafnvel erfiðustu veðurskilyrði sem er mikilvægt fyrir íslenskar aðstæður þar sem kalt er á veturna. Rannsóknir á umferðarspeglum og efni þeirra hafa sýnt að ryðfrítt stál sýnir langbesta endingu.

Þessir umferðarspeglar henta mjög vel fyrir sveitarfélög og húsfélög sem vilja að auka öryggi og sýnileika við varhugaverð gatnamót og inn og/eða útkeyrslur við bílastæði.

Aðstæður við gatnamót eru mismunandi og mjög mikilvægt er að velja réttan umferðarspegil sem hentar best viðkomandi aðstæðum. Því getur verið gott að skoða einnig umferðarspegil VA600 Acrylic Glass, VEB600 Basic Stainless Steel og VAR60 Acrylic Glass kringlóttur og velja svo þann spegil sem hentar best.

 

Tæknilegar upplýsingar
Umferðarspegill Delux Stainless Steel Standard VED600
Stærð 600 mm x 800 mm
Fjarlægðarsvið 0-15 m
Þyngd 8 kg
Vörunúmer 44spi VED600

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um umferðarspegla.

 

Umferðarspegill Deluxe Stainless Steel 600x800mm

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur