- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Gólfslípun
- Umferðaröryggi
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
- Mælitæki
- Fyrir húsfélög
- Rannsóknartæki
- Efnavörur
- Fræðsluhornið
- Flugvallarbúnaður
- Notuð tæki
Skurðavaltarar ARR1585 frá Ammann
Skurðavaltarar ARR 1585 (tTench Rollers) frá Ammann eru litlir öflugir valtarar eða þjöppur.
Þessir skurðavaltarar eru litlir valtarar sem eru alltaf í snertingu við jarðveg og gera kleift að beita öflugum þjöppunarkrafti við einstaklega erfiðar aðstæður.
Skurðavaltari ARR 1585 getur náð góðum árangri þar sem aðrar þjöppur hafa ekki náð árangri og jafnvel bilað. Hæfni þessara skurðavaltara til að vinna í leirkenndum jarðvegi getur komið í veg fyrir þörfina á að fjarlægja og skipta um jarðveg sem getur haft veruleg fjárhagsleg áhrif.
Skurðavaltarar ARR 1585 hafa einstaklega hraða og nákvæma þjöppunargetu. Öflugt drifkerfi og framúrskarandi þyngdardreifing valtarans gefur honum óviðjafnanlegt grip í brekkum.
ARR 1585 skurðavaltari er með innrauða fjarstýringu en einnig eru fáanlegar aðrar stýringar svo sem handvirk stýring og snúrustýring.
Rammax fann upp skurðavaltarann fyrir meira en 40 árum síðan og ávallt hafa verið sett markmið til að bæta skilvirkni þeirra. Í dag er Ammann eini framleiðandinn sem býður upp á bæði liðskipta skurðavaltara og rennistýrða skurðavaltara.
Þessi tæki frá Ammann og aðrar dísel brennsluvélar frá Ammann geta notað umhverfisvænt HVO lífeldsneyti sem er vatnsmeðhöndluð jurtaolía sem búin er til úr úrgangi og dregur úr losun CO2 um allt að 90%.
Tæknilegar upplýsingar
Skurðavaltari | ARR 1585 |
Lengd | 1520 mm |
Hæð | 1230 mm |
Breidd trommlu | 630 / 850 mm |
Þvermál tromlu | 500 mm |
Þyngd | 1305 kg |
Vinnuhraði | 1.1 km/h |
Tiðni | 30 Hz |
Eldsneytistankur | 28 l |
Þessi tæki eru ekki til á lager.
Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um skurðavaltara.
Fleiri myndir