- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Gólfslípun
- Umferðaröryggi
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
- Mælitæki
- Fyrir húsfélög
- Rannsóknartæki
- Efnavörur
- Fræðsluhornið
- Flugvallarbúnaður
- Notuð tæki
Ruslatína Plokkstöng með snúanlegum haus
Ruslatína (Streetmaster Pro) með snúanlegum griphaus til að plokka og tína rusl
Mjög létt og þægileg ruslatína sem hentar einstaklega vel til að plokka og tína rusl. Þar sem þessi ruslatína er með snúanlegum haus auðveldar það plokk og tínslu á rusli við þröngar og erfiðar aðstæður.
Ruslatínur eru kallaðar ýmsum nöfnum t.d. plokkstöng, plokkprik, griptöng og gripklemma fyrir rusl.
Þessi ruslatína hentar vel fyrir þá sem vilja fara út að plokka rusl og þá sem vilja taka þátt í Stóra Plokkdeginum sem haldinn er ár hvert í sveitarfélögum vítt og breytt um landið.
Þessi ruslatína er 93 cm löng eða 37“ og með henni er hægt að tína alls konar rusl eins og dósir, pappír ofl. Einnig er hægt að fá ruslatínu sem er 50" eða 127 cm löng.
Að nota plokkstöng eða ruslatínu við að plokka rusl kemur í veg fyrir að fólk þurfi að beygja sig eftir ruslinu. Til að gera plokkið enn þægilegra og léttara er frábært að nota ruslapokahaldara Handihopp til að halda ruslapokanum opnum þegar rusl er plokkað í poka.
Að plokka rusl er skemmtileg og umhverfisvæn útivist og frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa.
Tæknilegar upplýsingar
Ruslatína Streetmaster Pro |
Vörunúmer |
93 cm / 37“ | 90hel LP2137 |
127 cm / 50" | 90hel ha2150 |
Fleiri myndir