Ruslatína Plokkprik Griptöng fyrir rusl

Ruslatína (Litterpicker Pro) til að plokka og tína rusl

Mjög létt ruslatína og þægileg í notkun sem hentar vel til að plokka rusl.

Ruslatínur eru kallaðar ýmsum nöfnum t.d. plokkstöng, plokkprik, griptöng og gripklemma fyrir rusl.

Þessi ruslatína hentar vel fyrir þá sem vilja fara út að plokka rusl og þá sem vilja taka þátt í Stóra Plokkdeginum sem haldinn er ár hvert í sveitarfélögum vítt og breytt um landið.

Þessa ruslatínu er hægt að fá 83cm eða 93cm langa og með henni er hægt að tína alls konar rusl eins og dósir, pappír ofl.

Að nota plokkstöng eða ruslatínu við að plokka rusl kemur í veg fyrir að fólk þurfi að beygja sig eftir ruslinu. Til að gera plokkið enn þægilegra og léttara er frábært að nota ruslapokahaldara Handihopp til að halda ruslapokanum opnum þegar rusl er plokkað í poka.

Að plokka rusl er skemmtileg og umhverfisvæn útivist og frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa.

Ruslatínur fyrir þá sem vilja halda umhverfinu hreinu og fínu.

 

Tæknilegar upplýsingar
Ruslatína Vörunúmer
83 cm / 33“ 90hel LP1133
93 cm / 37" 90hel LP2637

 

Ruslatína Plokkprik Griptöng fyrir rusl

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur