Malbiksvaltari ARX36-2 frá Ammann 3.785 kg

Malbiksvaltari ARX 36-2.

ARX 36-2 malbiksvaltari er  3.785 kg að þyngd. 

Ammann ARX 36-2 malbiksvaltari er með Kubota vél sem uppfyllir bandaríska Tier 4 Final og ESB Stage V mengunarstaðla.  Þessi malbiksvaltari er með leiðandi mælaborð, lægri hljóðstyrk og nýtt LED ljósakerfi auk þess sem hann hefur verið endurhannaður bæði að framan og aftan.

Með malbiksvaltara ARX 36-2 er auðveldara að vinna við hliðina á hindrunum svo sem eins og kantsteinum.

ARX 36-2 malbiksvaltari er með háþróaða akstursstýringu með mjúka ræsingu og stöðvun þegar vélin er í gangi.  Auðveld stýring og stöðug snerting við yfirborðið eru lykilatriði til að ná hágæða þjöppun. Valtarinn er einnig með fjölþrepa úðunarkerfi með stórum vatnsgeymi sem þýðir lengra bil á milli fyllinga.

Malbiksvaltari ARX 36-2 er með rúmgóðan stjórnpall með þægilegu ökumannssæti. Mælaborðið er  með skýrum skjá og leiðandi stýringu. Fullkomið skyggni á vélinni allan hringinn hámarkar öryggi á vinnustaðnum.

 

Tæknilegar upplýsingar
Malbiksvaltari ARX 36-2 Upplýsingar
Lengd valtara 2915 mm
Hæð valtara 2840 mm
Breidd valtara 1385 mm
Breidd tromlu 1300 mm
Þvermál tromlu 850 mm
Þyngd 3.785 kg
Ferða hraði 10 km/klst
Vél Kubota D1803-CR-T
Mengunarstaðlar EU Stage V / U.S. EPA Tier 4 Final
Tíðni I 41 Hz
Tíðni II 55 Hz
Eldsneytistankur 57 lítrar
Vatnstankur 340 lítrar

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um malbiksvaltara.

 

Malbiksvaltari ARX36-2 frá Ammann 3.785 kg

AMMANN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur