Kapalhlíf 5 rása Heavy-Duty

Kapalhlífar Heavy Duty

5 rása Heavy-Duty kapalhlífar veita ökutækjum og gangandi vegfarendum örugga yfirferð á vegum þar sem aka eða ganga þarf yfir rafmagnssnúrur og ýmsa aðra kapla við framkvæmdir.

Þessar kapalhlífar veita jafnframt dýrmæta vörn fyrir skemmdum á leiðslum, slöngum og öðrum línum sem leggja þarf tímabundið yfir vegi við framkvæmdir.

Kapalhlíf Heavy-Duty hentar fyrir snúrur og slöngur með allt að 3,4 cm þvermál.

Auðvelt er að flytja einingar kapalhlífanna, setja þær upp, taka í sundur og geyma.

Þessar kapalhlífar eru tilvaldar til notkunar við framkvæmdir þar sem um þungaflutninga er að ræða.

 

Tæknilegar upplýsingar
Kapalhlíf 5 rása Heavy-Duty
Burðargeta 9 tonn á hvern hjólbarða eða 18 tonn á hvern öxul
Lengd 90 cm
Breidd 50 cm
Hæð 5,7 cm
Breidd á hverri rás  3,4 cm
Þyngd  11,3 kg
Vörunúmer 44TRP CP5X125

 

Kapalhlíf 5 rása  Heavy-Duty

Upplýsingar framleiðanda

Bæklingur

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur