- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Gólfslípun
- Umferðaröryggi
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
- Mælitæki
- Fyrir húsfélög
- Rannsóknartæki
- Efnavörur
- Fræðsluhornið
- Flugvallarbúnaður
- Notuð tæki
Þrýstikútur, vatnstankur Hose 2 Go
Þrýstikútur Hose 2 Go er vatnstankur með stöðugum þrýstingi frá Makinex.
Þessi vatnstankur er tilvalinn fyrir kjarnaborun með vatni, sögun eða slípun með vatni auk þess fyrir byggingariðnaðinn sem rykhreinsunartæki.
Hose 2 Go vatnstankurinn er í raun færanleg vatnsveita þar sem er engin dæla, ekkert rafmagn og engin þörf er fyrir rafhlöðu.
Þessi vatnstankur eða þrýstivatnstankur er frábrugðinn öllum öðrum vörum á markaðnum þar sem hann veitir stöðugt vatnsrennsli án notkunar dælu, rafhlöðu eða rafmagns.
Þetta er einfalur vatnstankur sem er auðveldur í notkun. Hann er með handfangi með tveimur þægilegum burðarstöðum. Kostirnir sem eru margir eru meðal annars:
- Engin dæla sem þýðir meiri áreiðanleiki.
- Ekkert vesen með rafmagn.
- Engin rafhlaða sem skipta þarf út eða hlaða.
- Engin þörf á að dæla handvirkt til að fá þann vatnsþrýsting sem óskað er eftir.
- Engin þörf á að draga slöngur um vinnustaðinn.
Vatnstankurinn er með 14 lítra rúmtak og allt að 30 mínútur af stöðugu vatnsrennsli. Auk þess vegur vatnstankurinn undir 20 kg þegar hann er fullur.
Vatnstankur Hose 2 Go er áströlsk hönnun sem hefur verið í þróun í yfir sex ár og er talin vera ein nýstárlegasta varan fyrir byggingariðnaðinn í langan tíma.
Tæknilegar upplýsingar
Vatnstankur | Hose 2 Go |
Hæð | 800 mm |
Breidd | 144 mm |
Þyngd tómur | 5,7 kg |
Þyngd fullur | 19,5 kg |
Lítra fjöldi | 13,8 l |
Stöðugur þrýstingur | 7-10 psi |
Vörunúmer | 46C3500 |
Fleiri myndir