Kapalhlífar 3ja rása

Kapalhlífar sem eru 3ja rása

Þessar 3ja rása kapalhlífar veita ökutækjum og gangandi vegfarendum örugga yfirferð á vegum þar sem aka eða ganga þarf yfir rafmagnssnúrur og ýmsa aðra kapla við framkvæmdir.

Þessar kapalhlífar veita jafnframt dýrmæta vörn fyrir skemmdum á leiðslum, slöngum og öðrum línum sem leggja þarf tímabundið yfir vegi við framkvæmdir.

Auðvelt er að flytja einingar kapalhlífanna, setja þær upp, taka í sundur og geyma.

Þessar kapalhlífar eru tilvaldar til notkunar við framkvæmdir þar sem um þungaflutninga er að ræða.

 

Tæknilegar upplýsingar
Kapalhlífar 3ja rása
Burðargeta Allt að 20 tonn
Stærð á rásum 2x65mmx50mm og 1x55mmx50
Stærð á kapalhíf 600mm x 880mm x 75mm
Vörunúmer 41s33934

 

Kapalhlífar 3ja rása

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur