Sigti fyrir rannsóknarstofur

Hágæða og endingargóð sigti til notkunar í rannsóknum á jarðvegi, fyrir malarefni. Þessi sigti eru fáanleg í mörgum mismunandi gerðum og stærðum.

Vírofið sigti  eða Woven Wire Mesh Sieves. Þetta eru sigti úr ryðfríu stáli, ofnum vír og ramma. Þessi sigti uppfylla alþjóðlegar kröfur. Þessi sigti eru fáanleg í eftirfarandi þvermáli: 200mm, 250mm, 300mm, 315mm, 400mm, 450mm og 8"-12". Opin á vírnetssigtunum eru frá n° 00 upp í 77.

Sigti með kringlóttum götum eða Perforated Plate Sieves, Round Holes. Þessi sigti eru með gataðri plötu með kringlóttum götum. Götin eru frá n° 01 til 38.

Sigti með ferköntuðum götum eða Perforated Plate Sieves, Square Holes.  Þetta eru sigti með gataðri plötu með ferhyrndum holum. Götin eru frá n° 01 til 37.

Pönnusigti með loki úr ryðfríu stáli eða Wet Sieving Pans and Lids Stainless Steel.  Sigti þar sem vatn fer inn um úðastút sem er festur ofan á lokinu og vatnið rennur svo úr pönnunni með fínkornóttasta efninu. Fæst með tveim vatnsþéttum innsiglum.

Blaut-þvotta sigti eða Wet washing sieves.  Þessi sigti eru notuð fyrir rannsóknir á fínkornuðum efnum.  Rammi og ofinn vírdúkur eru úr ryðfríu stáli. Grindmál: Ø 200 mm og 200 mm á hæð. Margar gerðir eru fáanlegar af þessum sigtum.

 

Tæknilegar upplýsingar
Sigti Vörunúmer
Vírofið sigti   91A052
Sigti með kringlóttum götum 91A037
Sigti með ferköntuðum götum 91A031
Pönnusigti með loki úr ryðfríu stáli 91A046
Blaut-þvotta sigti 91A045

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um sigti fyrir rannsóknarstofur.

 

Sigti fyrir rannsóknarstofur

MATEST

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur