Sagarblöð, björgunarblöð (Rescue blade)

Sagarblöð frá Midhage fyrir björgunarsveitir og slökkvilið svokölluð björgunarblöð eða slysablöð.

Þessi sagarblöð eða björgunarblöð eru sterk sérblöð sem framleidd eru fyrst og fremst fyrir björgunarsveitir og slökkvilið til að saga í sundur bárujárn og timbur. Einnig er hægt að nota þessi sagarblöð í niðurrifsvinnu og önnur þess háttar verkefni.

Þetta sagarblað, björgunarblað,  er ætlað til notkunar í handsagir og röng meðhöndlun hefur í för með sér mikla slysahættu.

Athuga þarf að meðhöndlun þessara sagarblaða krefst sérþekkingar.

Rescue blade sagarblöðin eru mjög sterk og með grófum tönnum með neikvæðu horni.

Hægt er að fá björgunar-sagarblað með 16 tönnum og 24 tönnum.

 

Tæknilegar upplýsingar
Sagarblað  Stærð Vörunúmer
Sagarblað 300x25,4 RESCUE BLADE 300x25,4 143006161254
Sagarblað 350x22,5 RESCUE BLADE 350x22,5 143506241222
Sagarblað 350x25,4 RESCUE BLADE 350x25,4 143506241254

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um sagarblöð.

 

Sagarblöð,  björgunarblöð (Rescue blade)

MIDHAGE

 

 

Tengdar vörur