25. október. 2022

Nýr umhverfisvænn rafdrifinn valtari eARX 26-2

Ammann eARX 26-2 – umhverfisvænn valtari

Á vélasýningu BAUMA 2022 kynnti Ammann til sögunnar nýjan rafdrifinn valtara eARX 26-2 sem getur unnið í allt að 8 klukkustundir og jafnvel í einhverjum tilfellum lengur án endurhleðslu.

Þessi valtari er einstaklega hljóðlátur og hljóðstyrkur sem berst á stjórnpallinn er allt að 46% minna en í valtara með diesel vél.

Valtari eARX 26-2 er búinn öflugum háþróuðum 48 volta rafhlöðupakka með afkastagetu upp á 600 Ah/31,5kWh.  Rafhlöðupakkinn er með LiFePO4  sem er alveg einstök tækni þar sem hver innri rafhlaða er sérstaklega varin og allur rafhlöðupakkinn er því betur eldvarinn sem eykur öryggi gríðarlega mikið. LiFePO4 rafhlöður hafa langan líftíma og þola mikinn fjölda af hleðslum.  Líklegt er að rafhlaðan endist út líftíma vélarinnar.

Hratt og auðvelt er að hlaða valtarann og eru tvær hleðsluleiðir í boði:

- Innbyggt hleðslutæki - 50-amp hleðslukerfi með 12 klst hleðslutíma (frá 0% til 100% rafhlöðugetu)

- Ytra hleðslutæki - 200-amp hleðslukerfi með 3,5 klst hleðslutíma (frá 0% til 100% rafhlöðugetu)

Stöðugt er hægt að fylgjast með hleðslustigi rafhlöðunnar. Sjálfvirk viðvörun er sýnd á skjá þegar hleðsla fer niður í 10%.  Þegar hleðsla fer niður í 3% slekkur kerfið sjálfkrafa á titringnum ​​til að spara orku svo hægt sé að fara með vélina á hleðslusvæði.

Hitastig umhverfis hefur ekki eins mikil háhrif á LiFePO4 eins og á Li-ion rafhlöður eða aðrar sambærilegar rafhlöður. Hægt er að vinna með LiFePO4 rafhlöður þegar hitastig umhverfis er undir frostmarki eða í allt að  -10°C og upp í allt að 60°C.

Meðal kosta við þessar rafdrifnu vélar er nákvæmari stjórn á titringi sem gerir stjórnun á titrings tíðni  einstaka. Hægt er að stilla titringinn frá 55 Hz til 66 Hz fyrir hágæða og skilvirka þjöppun. Þægindi stjórnanda eru aukin en stjórnpallurinn er einangraður með gúmmípúða sem takmarkar titring sem nær til stjórnanda vélarinnar.

Þessi valtari hentar vel til vinnu á vinnustöðum þar sem halda þarf hávaða í skefjum t.d. á fjölmennum stöðum, miðborgum og íbúðahverfum auk þess sem hann hentar vel fyrir næturvinnu. Þar sem ekki er um útblástur að ræða hentar vélin vel til vinnu inni í byggingum og neðanjarðar svo sem í jarðgöngum.

Valtari eARX 26-2  er hluti af vöruframboði  í eMission áætlun Ammann sem tákna nýjan kafla í sjálfbærni,  minna magni af CO2 og minna kolefnisfótspori en þessir þættir eru sífellt mikilvægari eftir því sem reglur um losun verða strangari.

Við hjá Wendel ehf erum gríðarlega ánægð með að geta bætt þessum nýja umhverfisvæna valtara við vöruúrvalið okkar.

Hér má sjá frétt á heimasíðu Ammann um þennan nýja rafdrifna valtara.