Snjóblásari Westa 5628/5632

Snjóblásari frá Westa tegund 5628/5632 fyrir snjótroðara.

Snjóblásari 5628/5632 er ætlaður fyrir smærri snjótroðara t.d. Kässbohrer PB100 eða Prinoth Husky.

Þetta er öflugur snjóblásari til að flytja snjó í brekkur á skíðasvæðum, fræsa út lyftuleiðir, færa til snjó, hreinsa bílastæði og margt fleira.

Þessi snjóblásari er ætlaður framan á snjótroðara.

Snjóblásari 5628/5632 er með mikla vinnslubreidd eða 2,8 – 3,2 metra.

Þessi snjóblásari er með tvær öflugar túrbínur sem geta höndlað mikið magn af snjó. Tvær vökvastýrðar túður tryggja nákvæma staðsetningu á snjónum.

Þessi snjóblásari er með vökvastýrðan snúning á túðum.  Vökvastýrt spjald á túðum er valmöguleiki.

Snjóblásari 5628/5632 er með þvermál snigila 550 mm og þvermál kasthjóla 600 mm.

Snjóblásari 5628/5632 fyrir snjótroðara hentar vel fyrir dreifingu og uppbyggingu á snjó á skíðasvæðum.

Westa snjóblásarar – Þýsk gæði.

 

Tæknilegar upplýsingar
Snjóblásari Westa 5628/5632
Fyrir Snjótroðara
Vinnslubreidd 2.800 -3.200 mm
Þvermál snigla 550 mm
Þvermál kasthjóla 600 mm
Kastlengd 35 - 40 m

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um Westa snjóblásara.

 

Snjóblásari Westa 5628/5632

WESTA

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur