Ryksuga Husqvarna T7500

Ryksuga T7500 er öflug iðnaðarryksuga frá Husqvarna

Ryksugur T7500 eru öflugar 3ja fasa iðnaðarryksugur gerðar t.d. fyrir gólfslípivélar PG400 (3 fasa) frá Husqvarna.

Ryksuga T7500 er iðnaðarryksuga sem gerð er fyrir krefjandi verkefni

Ryksugan er búin hljóðlátum og öflugum túrbínumótor sem skilar mjög góðu loftflæði.

Þessi iðnaðarryksuga getur tekist á við efni sem erfitt er að meðhöndla svo sem steinryk og önnur niðurrifsefni sem verða til við ýmsa vinnu.

Þetta eru ryksugur með mjög gott síukerfi með mikla söfnunargetu og langan síulíftíma auk þess að geta tekist á við mikið magn af fíngerðu ryki.

Ryksuga T7500 er iðnaðarryksuga sem útbúin er tveim stórum vottuðum HEPA H13 síum auk pokasíu sem tryggja hreinan útblástur og langan líftíma.

Auðvelt er þrífa pokasíuna með Jet Pulse þrýstibúnaði.

Longopac® pokakerfið tryggir einföld og ryklaus pokaskipti.

 

Tæknilegar upplýsingar
Ryksuga T7500
Fasar 3
Volt 400 V
Mótor 5,5 kW
Loftflæði 600 m³/h
Hámarks sogkraftur 280 mbar
HEPA síur fjöldi 2
Síuflötur - forsía 2,9 m²
Síuflötur - HEPA sía 10,0 m²
Hæð 1.753 mm
Lengd 1.245 mm
Breidd 686 mm
Þyngd  206 kg
Hentar fyrir gólfslípivélar PG400 (3 fasa)
PG820RC
Pokar Longopac slöngupokar

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um iðnaðarryksugur.

 

Ryksuga Husqvarna T7500

HUSQVARNA

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur