- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Gólfslípun
- Umferðaröryggi
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
- Mælitæki
- Fyrir húsfélög
- Rannsóknartæki
- Efnavörur
- Fræðsluhornið
- Flugvallarbúnaður
- Notuð tæki
Ryksuga Husqvarna S36
Ryksuga S36 er öflug iðnaðarryksuga frá Husqvarna.
Ryksuga S36 er mjög öflug eins fasa HEPA iðnaðarryksuga sem hentar vel með gólfslípivélum frá HTC og Husqvarna, PG450, PG400 og PG280 sem og öðrum smáum til meðalstórum verkfærum.
Þessar ryksugur eru iðnaðarryksugur sem hannaðar eru til að uppfylla strangar kröfur verktaka og annarra fagmanna.
Ryksuga S36 eru með þrjá stóra ryksugu mótora sem veita mikið afl.
Ryksuga S36 er iðnaðarryksuga sem útbúin er þremur vottuðum HEPA H13 síum og keilulaga forsíu með yfir 4,5 m² hreinsifleti. Þetta veitir ryksugunni yfirburði á sogi á ryki, jafnvel af mjög fíngerðu steinryki og gipsryki.
Vinnustundamælir og vacuum mælir fylgir með ryksugu S36 til að fylgjast með ástandi á síum.
Longopac® pokakerfið tryggir einföld og ryklaus pokaskipti.
Ryksugur S36 frá Husqvarna eru sambærilegar iðnaðarryksugum D30 frá HTC.
Hér má finna fræðsluefni er varðar viðhald á ryksugum svo sem hreinsun á forsíum og hvernig skipta eigu um Hepa síu.
Öflugar iðnaðarryksugur frá Husqvarna áður HTC
Tæknilegar upplýsingar
Ryksuga | S36 |
---|---|
Þyngd | 63 kg |
Fasar | 1 |
HEPA síur fjöldi | 3 |
Mótor | 3,6 kW |
Afl | 230 V |
Loftflæði | 600 m³/h |
Hámarks sogkraftur | 220 mbar |
Síuflötur - forsía | 4,5 m² |
Síuflötur - HEPA sía | 6,6 m² |
Hentar fyrir gólfslípivélar | HTC 270 EG PG280/HTC280 PG400/HTC400 PG450/HTC450 PG510/HTC510 PG540/HTC540 HTC5 |
Hæð | 1.500 mm |
Lengd | 830 mm |
Breidd | 620 mm |
Pokar | Longopac slöngupokar |
Vörunúmer | 96967663807 |
Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um ryksugur og iðnaðarryksugur frá Husqvarna.
Fleiri myndir