- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Gólfslípun
- Umferðaröryggi
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
- Mælitæki
- Fyrir húsfélög
- Rannsóknartæki
- Efnavörur
- Fræðsluhornið
- Flugvallarbúnaður
- Notuð tæki
Rafknúinn illgresiseyðir WeedStriker™ með heitu vatni
WeedStriker™350&500 illgresiseyðir er búnaður sem sérstaklega er hannaður til að fjarlægja illgresi.
Þetta er rafknúinn illgresiseyðir með heitu vatni frá Hilltip með snjallsímastýringu StrikeSmart™.
Þessi illgresiseyðir er umhverfisvæn illgresisvörn. Þetta er hreyfanlegur illgresiseyðingarbúnaður með heitu vatni sem hannaður er til að setja á pallbíla, sendiferðarbíla, tengivagna, dráttarvélar og önnur svipuð farartæki.
WeedStriker™ illgresiseyðingarbúnaðurinn er útbúinn heitavatnskatli og 12V dælu sem stjórnað er með StrikeSmart™ snjallsímaappi en snjallsími fylgir með.
Hægt er að fá mismunandi illgresisvarnarstúta gera það auðvelt að losna við illgresi á gangstéttum, gangbrautum og sprungum í innkeyrslum. Heitt vatn drepur illgresi á umhverfisvænan hátt án aðkomu eiturefna og því er óhætt að nota meðhöndlaða svæðið strax eftir eyðingu á illgresi.
Hægt er að tengja illgresiseyðinn við ferilskráningarbúnaðinn HTrack™ . Þar er hægt að fylgjast með og stjórna öllum Hilltip búnaði í gegnum netið í tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma. Ferilskráningarbúnaðurinn skráir leiðir og úðunar upplýsingar í rauntíma eða á ákveðnum tímapunktum. Hægt er að útbúa PDF skýrslur þar sem dregnar eru saman upplýsingar um leiðir,hraða og GPS staðsetningu.
Staðlaður búnaður með illgresiseyði WeedStriker™
- Stútasett fyrir illgresi WD 01, 4-6 l/mín., 96 – 105 °C
- Flýti starthnappur með forstillingu
- Stillanlegt vatnsrennsli 4-8 l/mín
- Hitastýring allt að 110°C
- Dísil hitari 54 KW
- Slönguhjól, 20 m
- StrikeSmart™ snjallsímastjórnun með stillanlegum breytum
Aukabúnaður sem hægt er að fá fyrir illgresiseyði WeedStriker™
- Stútasett fyrir illgresi WD 04, 5-8 l/mín, 96 – 105 °C.
Tæknilegar upplýsingar
Illgresiseyðir | 350 | 500 |
Rúmmál tanks | 350 lítrar | 500 lítrar |
Breidd | 106 cm | 106 cm |
Hæð | 83 cm | 105 cm |
Lengd | 124 cm | 140 cm |
Þrýstingur | 4 bar | 4 bar |
Afköst | 4-8 l/mín | 4-8 l/mín |
Rafmagn | 12V | 12V |
Þyngd (tómur tankur) | 200 kg | 205 kg |
Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar.
Fleiri myndir