- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Gólfslípun
- Umferðaröryggi
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
- Mælitæki
- Fyrir húsfélög
- Rannsóknartæki
- Efnavörur
- Fræðsluhornið
- Flugvallarbúnaður
- Notuð tæki
Överaasen TV750 snjóblásarar fyrir flugvelli
Øveraasen TV750 snjóblásarar eru sjálfknúnir háhraða snjóblásarar sem sérstaklega eru ætlaðir fyrir krefjandi snjómokstur á flugvöllum. Þessir snjóblásarar henta einstaklega vel þar sem kröfur eru gerðar til mikillar snjóhreinsigetu og nauðsynlegt er að blása snjó langt út fyrir flugbrautir.
Snjóblásarar Överaasen fyrir flugvelli eru með gríðarlega mikla afkastagetu og mikinn vinnsluhraða sem nauðsynlegt er fyrir flugvelli með mikla flugumferð. Þessir snjóblásarar ráða við allar tegundir af snjó frá 1 cm dýpri upp í allt að 2ja metra dýpt í einni umferð.
Snjóblásarar Överaasen eru byggðir á sérsmíðaðan undirvagn og eru með einstakt færanlegt stýrishús sem gerir ökumanni kleyft að sitja fyrir framan eða aftan útblásturinn eftir því hvað hentar best til að tryggja útsýni á meðan vinna við snjóblásturinn er í gangi. Þetta eru háhraða snjóblásarar þar sem þægindi fyrir ökumann eru tryggð þar sem stýrishúsið er ekki fast við blásara búnaðinn og því minni hristingur og titringur fyrir stjórnanda tækisins.
Tæknilegar upplýsingar
Snjóblásari | TV 750 |
Hreinsibreidd | 3 000 mm |
Þyngd | 26 000 kg |
Vinnuhraði | max. 50 km/h |
Afkastageta | 6 500 t/klst |
Hámarks blásturslengd | 50 m |
Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um snjóblásara fyrir flugvelli.
Fleiri myndir