Överaasen TV 1000 snjóblásarar

Överaasen TV 1000 og TV1000+ snjóblásarar fyrir flugvelli

TV1000/TV1000+ eru sjálfkeyrandi háhraða snjóblásarar sem sérstaklega eru  ætlaðir fyrir krefjandi snjómokstur á flugvöllum.

Snjóblásarar TV1000/TV1000+ eru hannaðir fyrir mikinn snjómokstur á flugvöllum og þeir ráða við allar tegundir af snjó með allt að 1 cm dýpri upp í 2ja metra dýpi í einni umferð.

Þessi snjóblásari er festur á sérsmíðaðan undirvagn. Blásarinn er með einstakt færanlegt stýrishús sem gerir ökumanni kleyft að sitja fyrir framan eða aftan útblásturinn eftir því hvað hentar best til að tryggja útsýni á meðan vinna við snjóblásturinn er í gangi.

Snjóblásari TV1000 er háhraða blásari þar sem þægindi fyrir ökumann eru tryggð þar sem stýrishúsið er ekki fast við blásarann og því minni hristingur og titringur fyrir stjórnanda tækisins.

Snjóblásari TV1000 er með tvær Volvo Penta vélar með samtals 1000 hestöfl með snjóblásturs getu fyrir meira en 7.500 tonn af snjó á klukkustund sem blásið er í 35 metra fjarlægð.

Snjóblásari TV1000+ er með tveimur sterkum MTU dísilvélum með snjóblástursgetu allt að 8.500 tonn af snjó á klukkustund sem blásið er í 35 metra fjarlægð.

Snjóblásarar TV 1000 og TV1000+ eru frábærir snjófeykjar fyrir flugvelli.

 

Tæknilegar upplýsingar
Snjóblásari TV 1000 TV 1000+
Hreinsibreidd 3.430 mm 3.430 mm
Þyngd 32.200 kg 35.500 kg
Hraði hámark 60 km/klst 60 km/klst
Vinnuhraði 10-40 km/klst 10-40 km/klst
Afkastageta 7.500 tonn/klst 8.500 tonn/klst
Hámarks blásturslengd 40-50 m 40-50 m

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um snjóblásara fyrir flugvelli.

 

Överaasen TV 1000 snjóblásarar

ØVERAASEN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur