Överaasen snjótennur EP6 og EP9 fyrir flugvelli

Snjótennur EP6 og EP9 frá Överaasen fyrir flugvelli, framleiddar í Noregi.

Snjótennur fyrir snjómokstur á flugvöllum

Snjótennur EP6/EP9 eru stórar og öflugar snjótennur frá Överaasen sem sérstaklega eru hannaðar fyrir snjómokstur á flugvöllum.

Snjótennur með fjórum örmum fyrir flugvelli

Þessar snjótennur EP6/EP9 eru tengdar með fjórum örmum við aðalgrindina þ.e, með tveim örmum að neðan og tveim á efri hluta grindarinnar. Hægt er að stýra þessum snjótönnum án stuðningshjóla.

Léttar snjótennur hannaðar sérstaklega fyrir flugvelli

Snjótennur EP6/EP9 eru léttar, áreiðanlegar og sveigjanlegar. Þær eru hannaðir fyrir snjómokstur á flugvöllum ásamt Overaasen flugbrautasópum.

Snjómokstursbúnaður fyrir kröfur um hreinsunarhraða

Snjómokstursbúnaður Överaasen fyrir flugvelli er þróaður í nánu samstarfi við sérfræðinga og notendur sem setja strangar kröfur um afkastagetu, hreinsunarhraða og útkomu.

Överaasen snjótennur notaðar á flugvöllum um allan heim

Øveraasen er leiðandi í framleiðslu snjómokstursbúnaðar fyrir flugvelli um allan heim en vöruúrval Överaasen samanstendur af flugbrautasópum, snjóblásurum og snjótönnum.

 

Tæknilegar upplýsingar
Snjótennur fyrir flugvelli EP 6 EP 9
Hreinsibreidd 4 538 mm 6 810 mm
Fjöldi eininga 6 stk 9 stk
Breidd 915 mm 915 mm
Hæð 1 200 mm 1 200 mm
Skekkingargráða 35° 35°
Lyftihæð 120 mm 120 mm
Þyngd 1 400 kg 2 039 kg

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um snjótennur fyrir flugvelli.

 

Överaasen snjótennur EP6 og EP9 fyrir flugvelli

ØVERAASEN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur