Malbiksvaltari ARX160 frá Ammann 14 .000 kg

Nýr malbiksvaltari ARX 160.

ARX160 er stór malbiksvaltari 14 tonn að þyngd. 

Í  september 2022 kynnti Ammann til leiks tvo nýja þunga og stóra malbiksvaltara  ARX 140 og ARX 160 en þar fær stjórnandi valtarans fingurgóma-stýringu (fingertip steering eða FTS) og óviðjafnanlegt útsýni úr stýrishúsi sem er tilkomið þar sem fjórir ROPS-póstar eru staðsettir nálægt hurðunum en ekki í hornunum í stýrishúsinu en þessi endurhönnun bætir bæði öryggi og framleiðni.

Malbiksvaltari ARX160 er með rúmgott stýrishús og einstaklega hljóðlátt. Það er upphengt og einangrað frá hita og titringi.

Þessir malbiksvaltarar ARX160 hentar mjög vel þar sem mikilla þjöppunarafkasta er krafist svo sem við gerð flugbrauta.

ARX160 malbiksvaltari er með háþróaða stjórnstöðin með samþættum stjórnbúnaði sem staðsettur er nálægt stjórnanda valtarans sem auðveldar aðgengi að þeim sem styttir viðbragðstíma og eykur öryggi. Sæti stjórnandans er vel stillanlegt og snýst 270° til að hámarka sýnileika úr stýrishúsinu.

ARX160 malbiksvaltari er með nýjan 10 tommu skjá þar sem hægt er að keyra allar aðgerðir valtarans á einfaldan, öruggan og fljótlegan hátt. Auk þess sýnir skjárinn virkni valtarans og veitir yfirsýn yfir vökvamagn og viðvaranir. Skjárinn hreyfist með sæti stjórnandans til að auðvelda sýn.

Allir þessir eiginleikar ARX160 malbiksvaltarans eins og stýrishúsið, stjórnborðið og snúningssætið eru lykillinn að því að keyra valtarann áfram og aftur á bak án takmarkana.

Hér má finna grein á vef Ammann þar sem nánar er fjallað um eiginleika þessa nýja valtara.

 

Tæknilegar upplýsingar
Malbiksvaltari ARX160 Upplýsingar
Lengd valtara 5150 mm
Hæð valtara 3000 mm
Breidd valtara 2260 mm
Breidd tromlu 2130 mm
Þvermál tromlu 1400 mm
Þyngd 14 000 kg
Hámarks ferða hraði 12 km/klst
Vél Perkins 904J
Mengunarstaðlar EU Stage V, U.S. EPA Tier 4 Final
Tíðni I 35–40 Hz
Tíðni II 40–50 Hz
Eldsneytistankur 180 lítrar
Vatnstankur 1.010 lítrar

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um malbiksvaltara.

 

Malbiksvaltari ARX160 frá Ammann 14 .000 kg

AMMANN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur