- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Kjarnaborar, sagarblöð og slípivörur
- Gólfslípun
- Vinnuvélar og tæki
- Umferðaröryggi
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
- Merkisprey
- Mælitæki
- Fyrir húsfélög
- Efnavörur
- Fræðsluhornið
- Flugvallarbúnaður
- Notuð tæki
Malbiksvaltari ARP95 frá Ammann 9.700 kg
Nýr malbiksvaltari ARP 95.
ARP95 malbiksvaltarinn er 9,7 tonn að þyngd.
Ammann ARP 95 malbiksvaltari er með meiri vinnslubreidd en aðrir sambærilegir malbiksvaltarar á markaðnum. Þessi malbiksvaltari er með nýja hönnun stýrishúss sem gerir stjórnendum kleift að sjá brúnir og yfirborð tromlunnar.
Á ARP 95 malbiksvaltaranum er hægt að snúa stjórnandasætinu um 270 gráður og lengja það út fyrir stýrishúsið til að auka sýnileika enn frekar. Fjölvirkur stjórnskjár hreyfist með sætinu sem auðveldar aðgengi að honum og eftirlit með vélinni. Fullkomin sýn er úr stjórnklefa sem eykur öryggi á vinnstaðnum.
Malbiksvaltari ARP 95 er með háþróaðan stjórnbúnað sem felur í sér fingurgómastýringu eða „fingertip steering“ (FTS) og aukin afköst. Í boði eru ACEpro eða ACEforce Intelligent Compaction kerfi sem auðvelda rekstraraðilum að fylgjast með og meta framvindu völtunar.
Endurhönnun valtarans gerir kleift að færa tromlurnar 1390 mm (4,6 fet.) á hvorri hlið samanborið við 1350 mm (4,4 fet.) á fyrri útgáfum. Þetta þýðir þjöppunarbreidd upp á 3070 mm (10 fet), sem gerir ARP 95 malbiksvaltara leiðandi á markaði.
Annar lykil ávinningur af notkun ARP95 malbiksvaltara er minni eldsneytiskostnaður. Valtarinn er knúinn af Deutz EU Stage V / US EPA Tier 4 Final vél með bættum hugbúnaði og annarri virkni sem lækkar eldsneytiskostnað um allt að 25 prósent samanborið við fyrri kynslóð valtara.
ARP95 malbiksvaltari er með Ammann spólvörn sem eykur grip vélarinnar á krefjandi vinnustöðum. Valtarinn er með fjölbreyttar stillingar fyrir víbring fyrir nákvæmari þjöppunarstýringu og meiri gæði.
Malbiksvaltari ARP95 frá Ammann uppfyllir mengunarstaðla í Evrópu, EU Stage V, U.S. EPA Tier 4 Final.
Hægt er að fá ARP 95 í Combi útfærslu, sjá ARP 95C.
Tæknilegar upplýsingar
Malbiksvaltari ARP95 | Upplýsingar |
Lengd valtara | 4520 mm |
Hæð valtara | 3000 mm |
Breidd valtara | 1810 mm |
Breidd tromlu | 1680 mm |
Þvermál tromlu | 1220 mm |
Þyngd | 9700 kg |
Ferða hraði | 10 km/klst |
Vél | Deutz TCD3.6 L4 |
Mengunarstaðlar | EU Stage V, U.S. EPA Tier 4 Final |
Tíðni I | 38-42 Hz |
Tíðni II | 42-52 Hz |
Eldsneytistankur | 165 lítrar |
Vatnstankur | 800 lítrar |
Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um malbiksvaltara.
Fleiri myndir