Háþrýstiþvottabúnaður með heitu vatni fyrir pallbíl

Háþrýstiþvottabúnaður HillTip Jet-It™ High pressure washer með heitu vatni fyrir pallbíla og sendibíla. Þessi háþrýstiþvottabúnaður kemur með 30m langri slöngu.

Færanlegur og fjölhæfur háþrýstiþvottabúnaður

Þessi fjölhæfi háþrýstiþvottabúnaður frá Hilltip er færanlegur háþrýstibúnaður sem hannaður er til notkunar á pallbílum, sendibílum, tengivögnum, dráttarvélum og öðrum svipuðum tækjum.  

Háþrýstiþvottabúnaður til að þrífa gangstéttir og bílastæði

HillTip Jet-It™ háþrýstiþvottabúnaður hentar fyrir ýmiskonar þvott svo sem þrif á veggjakroti, búðarkerrum, strætóskýlum, bílastæðum, görðum, gangstéttum, stígum, þökum, vélum, skiltum ofl.

Háþrýstiþvottabúnaður með 140°heitu vatni

Háþrýstiþvottabúnaður til að þrífa erfið svæði en hægt er að hita vatnið í allt að 140°C. Fullkomið háþrýstitæki til að fjarlægja óhreinindi eins og fitu og olíu og leysa upp seyru og ísstíflu í rörum

Háþrýstiþvottabúnaður sem fjarlægir illgresi

Hægt er að fá illgresisþvottabúnað á þennan háþrýstiþvottabúnað sem gerir það auðvelt að losna við illgresi af gangstígum, gangbrautum og sprungum í innkeyrslum.

Háþrýstiþvottabúnaður drepur illgresi á umhverfisvænan hátt

Heitt vatn drepur illgresi á umhverfisvænan hátt og er því óhætt að nota hreinsað svæði strax eftir að illgresið hefur verið fjarlægt með HillTip Jet-It™ háþrýstiþvottabúnaði með heitu vatni.

Háþrýstiþvottabúnaður HillTip Jet-It™ með ýmsum aukahlutum

Aukahlutir sem hægt er að fá: Framlengingarslanga 10-20m, mismunandi spíssar, ýmsir stútar, slanga til að leysa upp seyru og ísstíflu í rörum, vatnshæðarskynjari.

Háþrýstiþvottabúnaður með spíssagreiðu fyrir götuþvott

Hægt er að fá spíssagreiðu fyrir götuþvott sem fest er framan á pallbíla og tengd við háþrýstiþvottabúnað. Hægt er að festa spíssagreiðuna á festingar sem ætlaðar eru snótönnum og snjóplógum.

 

Tæknilegar upplýsingar
Háþrýstiþvottabúnaður með heitu vatni HT2025H HT2525HD
Rúmmál 500-1000 L  350-1000 L
Þrýstingur 200 bar  250 bar
Afköst 25 l/mín 25 l/mín
Vél B&S Vanguard 18 hp Kubota 18,5 kW diesel
Hæð 105 cm 105 cm
Lengd 135 cm 165 cm
Breidd 127 cm 127 cm
Tankur breidd 100 cm (500 l) 100 cm (500 l)
Þyngd 320-390kg 395 – 470 kg
Vörunúmer 90HIL H24113

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar.  

 

Háþrýstiþvottabúnaður með heitu vatni fyrir pallbíl

HILLTIP

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur