Gólfslípivél Husqvarna PG510

Gólfslípivél PG510 frá Husqvarna er sambærileg gólfslípivél HTC510 frá HTC.

PG510 er gríðarlega öflug gólfslípivél frá Husqvarna

Gólfslípivél PG510 er gríðarlega öflug slípivél með þrjár slípiskífur, þriggja fasa mótor og 515 mm vinnslubreidd.

Gólfslípivél PG510 til að slípa steypt gólf og náttúrustein

Gólfslípivél PG510 frá Husqvarna hentar mjög vel til að slípa steinsteypt gólf, náttúrustein og timbur. Þessi gólfslípivél er með stafrænum tímamæli sem segir þér hversu lengi slípun hefur verið í gangi.

Gólfslípivél PG510 með vörn gegn raka sem eykur endingartíma

Helsti kostur við gólfslípivél PG510 er að hún er að fullu rykþétt. Hún veitir því óviðjafnanlega vörn gegn ryki og raka sem eykur endingartímann verulega.

Gólfslípivél sem einfalt er að flytja á milli staða

Gólfslípivél Husqvarna PG510 er mjög einfalt að fella saman eða að taka í sundur sem auðveldar flutning verulega. Einfalt og fljótlegt er að skipta um og tengja slípiklossa og slípipadsa við vélina.

Husqvarna gólfslípivélar áður frá HTC

Husqvarna framleiðir öflugar gólfslípivélar sem áður voru frá HTC en þeir voru frumkvöðlar í framleiðslu á gólfslípivélum til undirvinnu fyrir önnur gólfefni og til póleringar, Terrazo á steinsteypu.

Gólfslípivél PG510 og öflug iðnaðarryksuga S36 er málið

Mikilvægt er að tryggja öryggi þeirra sem vinna með búnað sem myndar ryk og mælum við því með að tengja öfluga iðnaðarryksugu Husqvarna S36 sem er með þrjár vottaðar HEPA síur við gólfslípivél PG510.

 

Tæknilegar upplýsingar
Gólfslípivél PG510
Þyngd 133 kg
Mótorstærð 4 kW/3x400 V
Vinnslubreidd  515 mm
Fasar 3
Fjöldi slípidiska 3
Snúningur Ein snúningsátt
Ráðlagðar ryksugur HTC D30/Husqvarna S36
Vörunúmer 4Kw 400v 96967932001

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar um gólfslípivélar.

 

Gólfslípivél Husqvarna PG510

HUSQVARNA

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur