- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Gólfslípun
- Umferðaröryggi
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
- Mælitæki
- Fyrir húsfélög
- Efnavörur
- Fræðsluhornið
- Flugvallarbúnaður
- Notuð tæki
Epoke TP Saltdreifarar og pækildreifarar
Epoke TP Saltdreifarar og pækildreifarar
TP serían af dreifurum frá Epoke eru beislistengdir saltdreifarar, sanddreifarar og pækildreifarar.
Epoke TP saltdreifarar eru ætlaðir fyrir dráttarvélar. Þessir saltdreifarar eru einfaldir og auðveldir í allri notkun og viðhaldi sem lengir endingatíma þeirra og lækkar rekstrarkostnað. Þessir dreifarar eru notaðir til að dreifa möl, sandi, salti og pækli með vals, dreifidisk eða úðagreiðu. Þeir geta sáldrað efninu beint niður eða með því að nota dreifidisk.
TP saltdreifarar eru fáanlegir í nokkrum útgáfum: TP1,5, TP3, TP3 Combi og TP9.
Dreifi breidd þessara saltdreifara fer eftir útgáfum en þeir dreifa efni allt frá 1,5 m breidd upp í 6 m breidd. Þetta þýðir að TP dreifarar eru tilvaldir til notkunar fyrir minni vegi, reiðhjólastíga og bílastæði.
TP saltdreifarar tryggja að efnið dreifist jafnt yfir svæðið.
TP saltdreifarar nota einfalda og notendavæna Epoke fjarstýringu, EpoMini X1 eða EpoBasic en auk þess er valkvætt að kaupa gagnasöfnunarbúnað. Með sumum dreifurum er einnig hægt að fá GPS búnað EpoSat og flóknari fjarstýringu EpoMaster X1.
Þurrefnistankarnir eru sandblásnir að utan og húðaðir með Zinki að innanverðu með tvöfaldri húðun og eru því vel varðir gegn tæringu. Vökvatankar eru úr PVC sem þolir vel saltpækil og önnur sambærileg efni.
Saltdreifarar TP eru með þurrefnistanka sem hægt er að fá stækkun á. Efnistankarnir eru allt frá 200 lítrum upp í 1.500 lítra með stækkun.
Tæknilegar upplýsingar
TP saltdreifarar | TP 1,5 | TP 3 | TP 9 | TP 3 combi |
Þurrefnistankur | 200 l | 300 l | 900 l | 300 l |
Stækkun á tanki | 100 l | 100/200/300 l | 300/600l | 100/200/300 l |
Heildar breidd | 1100 mm | 1300 mm | 2100 mm | 1300 mm |
Dreifibreidd dreifidisks | 1500–4000 mm | 1500–6000 mm | 1500–6000 mm | 1500–6000 mm |
Dreifibreidd vals | 800 mm | 1200 mm | 1800 mm | 1200 mm |
Þyngd | 180 kg | 315 kg | 435 kg | 430 kg |
Vökvatankur | - | - | 500 l | 300 l |
Fleiri myndir