Epoke ITM saltdreifarar

Epoke ITM dregnir saltdreifarar og sanddreifarar.

Epoke ITM saltdreifarar og sanddreifarar fyrir dráttarvélar, lyftara, fjórhjól og fleiri gerðir ökutækja.

ITM saltdreifarar eru litlir dreifarar og henta því vel fyrir notkun á hjólastígum, göngustígum, bílastæðum og öðrum sambærilegum svæðum. Þessir saltdreifarar eru einnig léttir og því mjög auðvelt að stjórna þeim.

Þessir saltdreifarar og sanddreifarar eru framleiddir í þrem stærðum, 350 lítrar, 450 lítra og 600 lítra.

Saltdreifarar ITM eru einfaldir dreifarar með mulningsöxli og dreifiöxli sem fyrirbyggja kögglamyndun í efni, drifnir af eigin hjólabúnaði og eru þar af leiðandi veghraðatengdir en einnig geta þeir verið fjarstýrðir frá ökutæki.

Hægt er að fá ýmsan aukabúnað með þessum saltdreifurum svo sem ýmsar útgáfur af dráttarbeislum og festingar fyrir lyftaragafla.

Epoke saltdreifarar eru framleiddir í Danmörku.

Frábær hálkuvarnarbúnaður!

 

Tæknilegar upplýsingar
Saltdreifari ITM ITM 35 ITM 45 ITM 60
Efnistankur 350 l 450 l 600 l
Dreifibreidd 780 mm 1000 mm 1146 mm
Heildar breidd 1150 mm 1435 mm 1885 mm
Þyngd 145 kg 192 kg 220 kg

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar.

 

Epoke ITM saltdreifarar

EPOKE

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur

 

 

Tengdar vörur