Blikkljósasett Multi-Light 340LED viðvörunarljós L9H

Viðvörunarljós, hágæða blikkljósasett Multi-Light 340 LED, flokkur L9H frá Nissen.

Þetta blikkljósasett inniheldur tvö viðvörunarljós. Þetta eru þýsk viðvörunarljós með LED tækni í hæsta gæðaflokki til notkunar t.d. aftaná ökutæki, á skilti eða vinnustöðum.

Þessi viðvörunarljós eru díóðu blikkljós samkvæmt staðli L9H. Hvort viðvörunarljós er með fjórum LED díóðum.

Þessi viðvörunarljós með sjálfvirkri dag- og nætur stillingu. Með blikkljósasettinu fylgir fimm metra kapall með rafgeymaklemmum til að leggja að rafgeymi og sex metra kapall sem tengir viðvörunarljósin saman.

Viðvörunarljós Multi-Light 340 LED L9H blikkljósasett eru framleidd samkvæmt Evrópu reglugerð EN 12352.

Viðvörunarljós flokkur L9H fyrir vinnusvæðamerkingar.

 

 

Tæknilegar upplýsingar
Viðvörunarljós Blikkljósasett Multi-Light 340LEDL9H
Flokkur, staðall L9H
Litur ljósa Gulur
Blikkljósahraði 60 fl./min.
Díóður 4 LED í hvoru ljós
Rafkerfi Tengist við 12 eða 24 volt
Ljósnemi Sjálfvirkur dag og nætur skynjari
Kapall 5 m að rafgeymi og 6 m milli ljósa
Heildarþyngd 5,4 kg
Vörunúmer 41 122312-1

 

Blikkljósasett Multi-Light 340LED viðvörunarljós L9H

NISSEN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur