Jarðvegsþjöppur

Við eigum jafnan á lager úrval af Ammann jarðvegsþjöppum með frábær afköst, fást í mörgum stærðum og gerðum og ætlaðar fyrir margskonar aðstæður.

Jarðvegsþjöppur undir ströngu gæðaeftirliti

Jarðvegsþjöppurnar frá Ammann eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Hægt er að fá litlar þjöppur eða allt frá 54 kg upp í mun þyngri þjöppur eða 825 kg og margar stærðir þar á milli.

Jarðvegsþjappa frá Ammann er með öfluga þjöppun

Ammann jarðvegsþjappa er hönnuð til að gefa öfluga þjöppun miðað við þyngd. Hún er með góða titringsvörn sem lágmarkar titring í handföngum og með gott vinnuviðmót.

Umhverfisvænar jarðvegsþjöppur sem geta notað HVO

Hægt er að fá þjöppur með dísil eða bensínvélum en dísil vélarnar geta notað umhverfisvænt HVO lífeldsneyti sem er vatnsmeðhöndluð jurtaolía sem dregur úr losun CO2 um allt að 90%.

Verð: Öll verð á vefsíðu www.wendel.is eru með VSK. Öll verð eru birt með fyrirvara um gengisbreytingar og innsláttarvillur.