- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Umferðaröryggi
- Mælitæki
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
Ryksuga Husqvarna T7500
Öflugar iðnaðarryksugur frá Husqvarna
T7500 eru öflugar 3ja fasa iðnaðarryksugur gerðar t.d. fyrir gólfslípivélar PG400 (3 fasa) frá Husqvarna.
T7500 iðnaðarryksuga er gerð fyrir krefjandi verkefni
Ryksugan er búin hljóðlátum og öflugum túrbínumótor sem skilar mjög góðu loftflæði.
Þessi iðnaðarryksuga getur tekist á við efni sem erfitt er að meðhöndla svo sem steinryk og önnur niðurrifsefni sem verða til við ýmsa vinnu.
Þetta eru ryksugur með mjög gott síukerfi með mikla söfnunargetu og langan síulíftíma auk þess að geta tekist á við mikið magn af fíngerðu ryki.
Iðnaðarryksuga T7500 er útbúin tveim stórum vottuðum HEPA H13 síum auk pokasíu sem tryggja hreinan útblástur og langan líftíma.
Auðvelt er þrífa pokasíuna með Jet Pulse þrýstibúnaði.
Longopac® pokakerfið tryggir einföld og ryklaus pokaskipti.
Tæknilegar upplýsingar
Lýsing | T7500 |
---|---|
Fasar | 3 |
Volt | 400 V |
Mótor | 5,5 kW |
Loftflæði | 600 m³/h |
Hámarks sogkraftur | 280 mbar |
HEPA síur fjöldi | 2 |
Síuflötur - forsía | 2,9 m² |
Síuflötur - HEPA sía | 10,0 m² |
Hæð | 1.753 mm |
Lengd | 1.245 mm |
Breidd | 686 mm |
Þyngd | 206 kg |
Hentar fyrir gólfslípivélar | PG400 (3 fasa) |
Pokar | Longopac slöngupokar |
Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar.
Fleiri myndir