Saltdreifari IceStriker 1600-2600 á minni vörubíla

Saltdreifarar og sanddreifarar.Hilltip IceStriker 1600-2600 eru rafdrifnir saltdreifarar fyrir pallbíla og minni vörubíla.

Saltdreifari á minni vörubíla fæst í þrem stærðum

Saltdreifari IceStriker 1600–2600 fæst í þremur stærðum þ.e. 1.600 lítra, 2.100 lítra og 2.600 lítra. Þessir saltdreifarar eru með dreifidisk úr rústfríu stáli og stjórnborð á íslensku.

Saltdreifari með færibandi eða snigli og snigilhúsi

Saltdreifari 1600–2600 er fáanlegur með tvenns konar efnisskömmtunarbúnaði þ.e. með rústfríum snigli og snigil húsi og hins vegar færibandi en báðar útgáfur ráða við salt, sand, áburð og smærri möl.

Saltdreifari með yfirbreiðslubúnaði með innbyggðum slám

Saltdreifari Hilltip IceStriker 1600 - 2600  er með innbyggðum pækiltönkum, fullkomnum stjórnbúnaði, innbyggðum hristara til að losa um efni og yfirbreiðslubúnaði með innbyggðum slám.

Aukabúnaður fyrir saltdreifara IceStriker 1600 – 2600

  • Pækilskömmtunarbúnaður f/dreifidisk 
  • Pækilskömmtunarbúnaður og úðagreiða
  • Vinnuljós
  • Blikkljós
  • Festing með ljósum f/númeraplötu
  • Búnaður f/aukið pækilmagn
  • Handsprautubúnaður m/12 metra slöngu

 

Tæknilegar upplýsingar
Saltdreifari 1600 2100 2600
Heildar lengd með snúningsdisk 3000 mm 3000 mm 3000 mm
Vörubílspallur lágmarks lengd 2100 mm 2100 mm 2100 mm
Breidd 1750 mm 1750 mm 1750 mm
Hæð frá hleðsluyfirborði ökutækis 1250 mm 1390 mm 1550 mm
Rúmtak 1500 l 2000 l 2500 l
Rúmtak kúfaður 1600 l 2100 l 2600 l
Þyngd tómur 360 kg 395 kg 420 kg
Dreifibreidd 1-12 m 1-12 m 1-12 m
Innbyggðir pækiltankar 900 l 900 l 900 l

Hilltip HTrackTM  kerfið er samhæft öllum HillTip snjótönnum, salt/sand dreifurum og pækildreifurum, það er að segja IcestrikerTM, SprayStrikerTM og SnowStrikerTM.

Vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar hjá Wendel í síma 551-5464 til að fá nánari upplýsingar.

 

Saltdreifari IceStriker 1600-2600 á minni vörubíla

HILLTIP

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur