- Vetrarbúnaður
- Verkfæri
- Umferðaröryggi
- Mælitæki
- Merkisprey
- Vinnuvélar og tæki
- Gatnahreinsibúnaður
- Holræsabúnaður
Forsuga Husqvarna C3000
Husqvarna C3000 eru afkastamiklar forsugur fyrir mjög stór slípiverkefni þar sem mikið er af ryki.
Mælt er með að tengja þessar forsugur við iðnaðarryksugur S26 og S36 frá Husqvarna eða iðnaðarryksugur D20 og D30 frá HTC.
Forsuga C3000 aðskilur 90% af ryki og öðru efni áður en það fer yfir í ryksuguna sem eykur soggetuna til muna, lengir endingu mótorsins og dregur verulega úr tíðni viðhalds síunnar í ryksugunni.
Með því að nota forsugu með iðnaðarryksugu fæst lengri verktími án truflana.
Forsuga eykur getu ryksugunnar til að höndla efni sem venjulega eru talin erfið meðhöndlunar eins og sót, brennandi agnir, vökvi og létt efni í miklu magni.
Longopac® pokakerfið tryggir einföld og ryklaus pokaskipti.
Þessa forsugu er hægt að nota bæði í blaut- og þurrslípun.
Tæknilegar upplýsingar
Lýsing | C3000 |
---|---|
Rúmmál tanks | 37 l |
Hæð | 1.580 mm |
Lengd | 590 mm |
Breidd | 730 mm |
Þyngd | 22 kg |
Ryksugur sem hægt er að tengja við | S13 S26 S36 T4000 |
Pokar | Longopac slöngupokar |
Fleiri myndir