Jarðvegsþjappa APF 10/33 Ammann

Jarðvegsþjappa APF 10/33 er léttasta og minnsta jarðvegsþjappan í þjöppu úrvali Ammann eða einungis 54 kg.

Lítil jarðvegsþjappa fyrir minni vinnusvæði

APF 10/33 jarðvegsþjappan er lítil og handhæg og hentar vel fyrir lítil vinnusvæði og afmörkuð svæði. Hún nýtist einstaklega vel þar sem erfitt er að koma stærri jarðvegsþjöppum að.

Þjappa með öfluga bensínvél

Þessi þjappa hefur mjög góða titringsvörn sem lágmarkar titring í handföngum þjöppunnar og gefur þannig þægilegt vinnuviðmót. Hún er með öfluga og áreiðanlega bensínvél.

Þjappa með vatnstanki fyrir þjöppun á malbiki

Hægt er að fá vatnstank sbr. mynd sem nýtist við þjöppun á malbiki. Þó lítil sé gefur þessi þjappa  öfluga þjöppun miðað við þyngd.

Jarðvegsþjappa sem auðvelt er að flytja á milli staða

Auðvelt er að færa þjöppuna á milli vinnustaða. Þegar vinnu með jarðvegsþjöppunni er lokið ætti að vera hægt að skutla þessari litlu og nettu þjöppu í skott á fólksbíl.

 

Tæknilegar upplýsingar
Jarðvegsþjappa APF 10/33
Þyngd 54 Kg
Þjöppunarkraftur  10,5 kN
Vél Honda GX 120, 2,9 kw
Lengd plötu 497 mm
Breidd plötu 330 mm
Vörunúmer 500000010H33APF

 

Jarðvegsþjappa APF 10/33 Ammann

AMMANN

Upplýsingar framleiðanda

Heimasíða Bæklingur Myndband

 

Fleiri myndir

 

Tengdar vörur