8. nóvember. 2021

A.Wendel ehf í hópi framúrskarandi og fyrirmyndar fyrirtækja

Nú árið 2021 erum við hjá Wendel ehf afar stolt og þakklát yfir að vera í hópi framúrskarandi fyrirtækja og fyrirmyndar fyrirtækja í rekstri fimmta árið í röð.

Fyrirtækið er á meðal 2% fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækum og 2,2% fyrirtækja hjá Viðskiptablaðinu og Keldunni á Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2021.

Þennan árangur má þakka frábærum starfsmönnum og traustum viðskiptavinum.

Til þess að teljast Framúrskarandi og Fyrirmyndar fyrirtæki þurfa fyrirtæki að uppfylla strangar kröfur og skilyrði en þessar viðurkenningar gefa vísbendingar um að fyrirtækin sem ná því séu líklegri til að ná árangri og standast álag en önnur.

Hér má sjá frétt um viðurkenningarnar frá því í fyrra.

 

Myndasafn